Hér inni á veiða.is eru nokkrir lausir dagar á Ósasvæði Laxá á Ásum, mjög góðu vor og snemmsumars veiðisvæði. Það var einungis fyrir um 2 árum síðan sem stangveiði var hafin á svæðinu með skipulögðum hætti. Ósasvæðið er 2ja stanga svæði, um 3km langt og um það gengur allur fiskur sem er á leið í Laxá á Ásum, Vatnsdalsá og Fremri Laxá. Aðallega veiðist bleikja, sjóbirtingur en einnig lax. Með veiðisvæðinu fylgir gisting í gamla veiðihúsinu að Laxá á Ásum. Veiðin í maí og júni er að miklu leyti fallaskipt og því má veiða hvenær sem er sólarhringsins. Veitt er á flugu. Svæðið hefur fengið mikla athygli og flestir dagar eru seldir nú þegar. Um svæðið var fjallað í árbók stangveiðinnar 2012 og einnig skrifaði Pálmi Gunnarsson grein um svæðið í Viðskiptablaðið.

Hér er hægt að sjá lausu dagana og hérna er hægt að lesa nánar um svæðið.

{gallery}laxaaasum{/gallery}

[email protected]