Kæru veiðimenn, nær og fjær. Gleðilega jólahátið og þökk fyrir árið sem er að líða. Nú er gott veiðiár að baki og annað spennandi ár handan við hornið. Við þökkum samfylgdina á árinu og vonum að þið verðið með okkur á árinu 2014.

Á þessu ári nýttu yfir 20 veiðiár og vötn, veiða.is til að selja veiðileyfi sín með beinum hætti. Á næsta ári munu enn fleiri veiðisvæði/veiðileyfi, verða boðin til sölu inná veiða.is. Nú á næstu dögum munu ný svæði verða skráð inná vefinn ásamt lausum veiðileyfum. Fyrir þá sem eru þessa dagana að ákveða hvar skal veiða næsta sumar en vantar smá hjálp við að ná yfirsýn yfir þá staði sem koma til grein, þá má senda okkur póst á [email protected] og við reynum að aðstoða.

[email protected]