Í gegnum tíðina hefur vel veiðst af sjóbirtingi í Brennunni. Yfirleitt fer að bera á fyrstu göngum sumarsins eftir miðjan júlí en síðustu birtingarnir fara í gegnum svæðið, væntanlega, seint á haustin. Hollið sem veiddi Brennuna 18-20. ágúst hitti á stóra sjóbirtingsgöngu. Samtals komu 48 birtingar á land. Sá stærsti var 7 pund en flestir voru á billinu 1,5-3 pund. Samtals eru nú komnir um 180 birtingar á land í sumar og besti sjóbirtingstíminn framundan.

Hér á veiða.is erum við með 2-3 laus holl í birtinginn í Brennu og einnig 1 holl á laxatímanum í byrjun sept. Seldar eru 4 stangir saman á sjóbirtingstímanum og er stangardagurinn á kr. 15.700. Heimilt er að veiða á 5. stöngina. Veiðisvæðið á sjóbirtingstímanum er stærra en hefbundið veiðisvæði Brennunnar en neðsti hluti Þverár fylgir einnig með. Hér er hægt að sjá hvað er laust.

[email protected]