Tilkynning frá Ytri-Rangá / West-Rangá
Nú í nótt var brotist inn hjá okkur og stolið bæði miklu magni af veiðibúnaði og af laxi sem var í frystur.
Veiðbúnaður sem var tekinn:
Sage One&method, Hardy, Gloomis Nrx, Mackenzie stangir og Einarsson, Guideline, Hardy og Sage hjól ath! Ekki tæmandi listi.
Búi menn yfir upplýsingum um málið vinsamlegast sendið tölvupóst á [email protected] eða hafið beint samband við lögregluna á Hvolsvelli.

Leiði upplýsingarnar til þess að þjófarnir náist eða að búnaðurinn skili sér verður sá/sú verðlaunaður með veiðileyfi í Ytri-Rangá

Sama skapi viljum við benda veiðimönnum að passa sig að skilja ekki stangir eftir á bílunum og vara við þessum skítseiðum sem eru að stela frá öðrum!!!!
Við munum setja inn frekari upplýsingar um búnaðinn og málið um leið og við getum!

[email protected]