Frestur til að skila inn tilboðum í Kálfá rann út á laugardaginn, 15. nóvember. All nokkur fjöldi tilboða barst í ána og voru þau sem hæst voru, yfir 2x hærri en leiguverð þessa árs. A.m.k. 3 tilboð voru um eða yfir 5 milljónir pr. ár en leiguverðið var rúmar 2,4 milljónir fyrir þetta ár. Svisslendingurinn Doppler, sem til margra ára hefur verið með laxveiðiár á leigu hér á landi, var með hæsta tilboðið uppá kr. 5,8 milljónir. Ekki eru samt miklar líkur á að hans tilboði verði tekið, heldur mun að öllum líkindum verða rætt við þá sem áttu næstu tvö tilboð, uppá 5,3 milljónir og 5 milljónir.

Ástæða þess að ekki eru taldar líkur á að samið verði við Doppler, er að hann gerir að kröfu að leyft verði að veiða með maðki í ánni. Í útboðskilmálunum var gert ráð fyrir fluguveiði og að öllum laxi, 70 cm og lengri, yrði sleppt.

Á næstu dögum verður ákveðið við hvern verður samið en hópurinn sem átti næst hæsta tilboðið er ekki ókunnugur Kálfá, hann var með hana á leigu á undan núverandi leigutaka.

[email protected]