Veiðin í Norðurá þessa dagana er hreint frábær. Í gærmorgun lönduðu veiðimenn í Norðurá 50 löxum, sem er glæsilegt. Áin er komin í um 630 laxa og er gríðarlega mikið af laxi að ganga í hana þessa dagana. Laxinn er farinn að dreifa sér um efra svæðið og geta því veiðimenn í Norðurá II átt von á góðu á næstunni.

Við viljum vekja athygli á lausum veiðileyfum í Norðurá á næstu dögum og vikum. M.a. eru lausar stangir í Norðurá I í byrjun ágúst, á flottum tíma. Einnig eru laus holl og stakar stangir í Norðurá II en á því svæði sjá veiðimenn um sig sjálfir, í mjög góðu húsi. Fyrir nánari upplýsingar og verð sjá hér, eða sendið póst á info at veida.is eða hringið í síma 897 3443.