Áfram veiðist ágætlega í Gufuá. 6 laxar komu á land í dag og 3 í gær. Nú er búið að skrá 50 laxa í bókina á þeim 25 dögum sem búnir eru af veiðitímabilinu. Flestir laxana veiðast á neðri svæðum árinnar, veiðistað nr. 0 og nr. 1 og einnig á ýmsum ómerktum veiðistöðum neðarlega í ánni. Lítið vatn er í Gufuá en fyrir neðan neðri brú, þar sem sjávarfalla gætir, virðist vera nóg af laxi. Þess má geta að stór hluti veiddra laxa í sumar hafa veiðst á flugu. Eins og við höfum áður sagt frá, þá var sett niður gott veiðihús við Gufuá í vor. Sjá má mynda af því hér að neðan.

Hér að ofan er Hrefna Gunnarsdóttir með 3 af löxum dagsins.

Hér má finna lausa daga í Gufuá í sumar.

info at veida.is