Laugardalsá er ein albesta laxveiðiá landsins. Laugardalsá er staðsett utarlega í Ísafjarðardjúpi. Veitt er með 2-3 stöngum í ánni og leyfilegt agn er fluga. Með veiðileyfum í ánni fylgir gott veiðihús. Veiðin í ánni hefur farið ágætlega af stað og nú allra síðustu daga hefur heyrst af miklum göngum uppí ána og hafa veiðimenn haft á orði að nú séu fleiri laxar komnir í ána en sáust allt síðasta sumar.
{gallery}laugardalsa{/gallery}
info at veida.is