Veiðin í Gufuá í sumar hefur verið afbragðsgóð þó svo að tímabilið hafi að ýmsu leyti verið mjög einkennilegt. Megnið af sumrinu var mjög lítið vatn í ánni en þá var veiðin mjög góð á ósasvæði árinnar, sjá lýsingu hér – eftir af fór að rigna, gekk megnið af laxinum uppá efra svæði árinnar og þar hefur veiðin verið ágæt undanfarið. Nú eru um 190 laxar komnir í bókina í Gufuá og örlítið eftir af tímabilinu. Hér má finna 2 lausa daga í Gufuá.
info at veida.is