Grafará fellur í austanverðan Skagafjörð, rétt sunnan Hofsóss. Grafará er ágæt bleikjuá en einnig veiðist einn og einn lax í ánni. Staðbundinn urriði veiðist einnig fremst í dalnum. Grafará er 2ja stanga á og leyfilegt hefur verið að veiða á flugu, maðk og spún. Veiðitími hefur verið frá 15. júní – 15. september.

Grafará er núna auglýst til útleigu fyrir sumarið 2017 en einnig er möguleiki á lengri leigu. Fyrir nánari upplýsingar er hægt að hafa samband við Guðrúnu í síma 893 7940 eða með því að senda tölvupóst á [email protected]