Veiðin hófst í Hlíðarvatni við Selvog á mánudaginn, 1. maí. Veður var fínt þennan fyrsta veiðidag tímabilsins í vatninu, sól og blíða en vatnið var kalt. Þegar leið á morguninn vaknaði lífríkið við vatnið, flugan fór á stjá og veiðimenn fóru að fá tökur frá fiskinum. Margar voru grannar en veiðimenn sem voru í húsi Árbliks náðu 3 fiskum á land og það sem var nú einna merkilegast við þá fiska, er að einn þeirra var urriði ca. 1,5 pund. Ekki er algengt að önnur tegund en bleikja veiðist í vatninu, en þess eru þó nokkur dæmi. Hér til hliðar má sjá 2 af þessum fiskum.