Veiðin hófst í Hlíðarvatni í Selvogi þann 1. maí 2015. Eins og flest vor, þá er vatnið núna í maí nær full mannað, þ.e. allar stangir seldar. Flesta daga hefur verið strekkingsvindur við vatnið og ískalt en þrátt fyrir kuldann þá eru veiðimenn að setja í og ná bleikjum á land. Veiðimaðurinn hér til hliðar, Jón Traustason, náði þessari vænu bleikju á Húsatanga þann 6. maí. Bleikjan vigtaði 5 pund.
Hér má finna lausa daga í Hlíðarvatni í sumar. Verð fyrir hvern veiðidag, þar sem veiðileyfi fyrir 2 stangir og afnot af veiðihúsi í 1 sólarhring er innifalið, er kr. 12-14.000 í júní og júlí.