Við vorum að setja inná vefinn nokkur laus holl í Blöndu IV

Svæði IV í Blöndu  er gríðarfallegt og hefur veiðin, sum sumrin, verið hreint út sagt mögnuð. Vatn Blöndu er á þessu svæði blátært og veiðisvæðið mjög svo ólíkt því neðra, fallegir nettir hyljir, gljúfur, gyl og veiðilegar breiður. Á þessu svæði fara nettari flugustangir vel: einhendur og nettar switch stangir.

Veitt er á 3 stangir í Blöndu IV og er fluga eina leyfilega agnið. Fínt hús er á svæðinu sem veiðimenn dvelja í – húsgjald er innifalið i verðinu, þrif og uppábúið.

Hollinu sem laus eru, eru bæði í lok júní á tíma sem má skilgreina sem silungsveiði með laxavon – en einnig holl í júlí á tíma þegar göngur eru að aukast uppá svæðið.

Hérna má sjá laus holl