Nú eru nokkur laus holl í Blöndu IV komin í sölu hér á vefnum. Eins má finna stök holl í Svartá í Svartárdal. Blanda I, II og III er mjög vel seld í júní og júlí en þann tíma eru svæðin að miklu leyti veidd saman í róteringu.

Blanda IV

Inná vefnum má núna finna nokkur laus holl í Blöndu IV. Laust holl í júlí og annað í águst og svo 1 í lok júní. Hollið í júní er á mjög góðu verði, enda hending hversu margir laxar eru komnir uppá svæðið á þeim tíma. Fyrstu laxarnir renna sér þangað uppeftir oft í kringum eða eftir miðjan júní – en á Svæði IV í Blöndu má einnig finna gott magn af stórum urriða og vænni bleikju. Stangardagurinn í júníhollinu er kr. 34.000. sjá hér.

 

Blanda I, II og III – staða Blöndulóns

Eins og fyrr segir þá eru svæði I, II og III í Blöndu nánast uppbókuð í júní og fram í byrjun ágúst. Aðal veiðihúsið í Blöndu eru opið á sama tíma, eða fram til ca. 10. ágúst. Síðustu ár þá hefur verið mjög óljóst hvenær Blöndulón færi á yfirfall og þá sérstaklega mtt. til veiði á svæðunum í Blöndu. Fyrir 2 árum þá kom yfirfallið í júlí og í fyrra þá gerðist það í undir 20. ágúst. Nú er svo komið að Landsvirkjun hefur gefið út að staða miðlunarlóna sé með því lægsta sem við höfum séð, undanfarin ár. Það á jafnt við um Blöndulón og önnur miðlunarlón Landsvirkjunar. Eins og sjá má hér, þá er staða Blöndulóns sú að yfirborð lónsins er rúmlega 1 metra undir meðaltali og tæplega 2 metrum undir stöðu lónsins eins og það var á sama tíma í fyrra.

Þessi staða hefur fengið ýmsa eldri Blönduveiðimenn til að fullyrða að mjög góðar líkur séu á að lónið fari ekki á yfirfall, fyrr eftir að veiðitímabilinu lýkur – ef það fer þá á yfirfall yfirleitt. Ekki er hægt að fullyrða um slíkt, en þó virðast líkur á að Blönduveiðimenn geti veitt á svæðum Blöndu lengur en undanfarin ár.

Við erum nú þegar byrjaðir að fá fyrirspurnir um daga á Blöndusvæðunum síðari hluta ágúst og í September. Blanda I, II og III verða seld sér – seldir verða stakir dagar inná hvert og eitt svæði. Blanda IV er selt eins og áður, 3 stangir seldar í pakka í 2 eða 3 daga í senn.

Á næstu vikum munum við setja síðsumarsdaga á þessum svæðum á netið, en þangað til er hægt að senda okkur póst á [email protected] ef þið viljið nánari upplýsingar um verð og lausa daga.