Brúará geymir bæði stórar bleikjur, væna urriða og stöku laxa. Veiða.is kíkti í morgun á Spóastaðasvæðið til að aðstoða erlenda veiðimenn sem voru við ána í dag. Morguninn byrjaði vel, en í fyrsta rennsli tók 47cm bleikja spún á breiðunni fyrir neðan brú. Skömmu síðar urðum við varir við bleikjur í kantinum fyrir ofan brú – nokkrar mjög vænar. Eftir að hafa prófað nokkrar ólíkar flugur, þá fundum við þá einu rétt – ljós brúnann Mola nr. 16 – flott 53 cm bleikja.

Eftir fína klst við brúna, var kominn tími til að hleypa öðrum inná svæðið – kíktum við því neðar í ána. Á Breiðabakka voru 2 veiðimenn og því ákváðum við að stoppa svolítið fyrir ofan bakkann – nálægt hólmanum sem þar er. Í fyrsta rennsli tók lax, sem reyndist vera 63 cm langur – fyrsti laxinn sem við heyrum af í Brúarár þetta árið.

Flottir tímar á Spóastaðarsvæðinu. Nú má ætla að laxinn sé að skríða upp vatnakerfið og Spóastaðasvæðið og Skálholtssvæðið eru góð svæði til að hitta á laxinn í göngu. Verð veiðileyfa aðeins kr. 4.000

Hérna má finna leyfin í Brúará – það er laust á morgun og næstu daga

Meðfylgjandi eru nokkrar myndir frá morgninum.