Veiðileyfi inná Skáholtssvæðið í Brúará fyrir næsta veiðitímabil eru nú komin á vefinn.
Veiði á Skálholtssvæðinu var fín síðasta sumar. Vorið var mjög gott og veiðimenn sem bókuðu daga í apríl settu margir hverjir í bæði birtinga, urriða og bleikju. Yfir sumarið var það bleikjan sem gaf sig hvað best. Verð veiðileyfa er óbreytt á milli ára.
Seldar eru 4 stangir dag hvern og leyfilegt agn er fluga, maðkur og spúnn. Við hvetjum alla til að sleppa öllum fiski í vorveiðinni.