Í mars síðastliðnum bar til tíðinda þegar réttur til stangveiða í Deildará á Melrakkasléttu fór í útboð. Um árabil hefur veiðrétturinn verð á höndum erlends aðila en nú er orðið ljóst að nýir leigutakar taka við ánni og veiðileyfi loks aftur aðgengileg fyrir hinn almenna stangveiðimann.
Deildará lætur lítið yfir sér þar sem ekið er yfir hana skömmu áður en komið er inn á Raufarhöfn. Veiðimenn þurfa þó ekki að fara langt upp með ánni til að átta sig á að þarna er ekki allt sem sýnist.

Deildará hefur upp á margt að bjóða. Þar er að finna fjölbreytta veiðistaði, einstaka náttúrufegurð, friðsæld, fjölskrúðugt fuglalíf og það sem er líklega mikilvægast að áin er gjöful. Hátt hlutfall stórlaxa í Þistilfjarðaránum er heldur ekkert að gera veiðina minna spennandi.
Áin fellur úr Deildarvatni og er um 7 km löng. Henni er skipt upp í þrjú svæði og leyfð veiði með einni stöng á hverju svæði. Aðgengi að veiðistöðum er með besta móti. Engir háir bakkar eða gljúfur sem trufla köstin. Hægt er að keyra að bestu veiðistöðunum og frá þeim er tiltölulega auðveld ganga að næstu hyljum.

{gallery}deildara{/gallery}

Staðsetning: Rétt við Raufarhöfn um 650 kilómetra frá Reykjavík 
Leyfilegt agn: Fluga
Fjöldi stanga: 3 stangir
Veiðireglur: Sleppa skal öllum fiski yfir 70 cm, hirða má einn smálax á dag og allan silung
Veiðisvæði: Veiðisvæði er um 7 kilómetra langt þar sem það líður um Sléttuna, yndislegt umhverfi þar sem ekki sést í annað hús eða býli nema þegar komið er að veiðihúsi.
Meðalveiði: Er 175 laxa en hafa ber í huga að veiði hefur aðeins verið stunduð í kringum 30-40 daga á ári. 
Veiðitímabi: 27 júní-20 Sept
Daglegur veiðitími: 07:00-13:00-16:00-22:00 eftir 15 ágúst 07:00-13:00-15:00-21:00, þó er hægt að hafa veiðitíma frjálsan en aldrei meira en 12 stundir á dag í samræmi við leigutaka
Veiðihús: Á svæðinu er fínt veiðihús með þremur herbergjum og tveimur klósettum ásamt fullbúnu eldhúsi, sturtu og palli. Í sumar verður einnig bætt við 3 glæsilegum tveggja mannna herbergjum með klósetti við hliðina á núverandi húsi.

Merktir veiðistaðir eru sautján og til viðbótar eru mun fleiri álitlegir staðir sem enn hafa ekki hlotið nafngift. Deildará er ekki sérstaklega vatnsmikil og fer því afskaplega vel fyrir þá sem vilja veiða með einhendu. Nettar stangir, flotlínur, smáar flugur og gárutúpur eru réttu verkfærin við Deildará. 

Líklega er engin laxveiðiá hérlendis sem íslenskir veiðimenn þekkja minna til. Þetta á sér eðlilegar skýringar því veiðileyfi hafa verið ófáanleg í næstum 27 ár. Leigutaki á tímabilinu 1989 til 2015 var Svisslendingurinn Ralph Doppler og hefur hann að mestu nýtt veiðiréttinn sjálfur.

Fyrir tíma Doppler voru Þistilfjarðarárnar einnig þétt setnar útlendingum og var Deildará engin undantekning. Þegar samgöngur tóku loks að skána á sjöunda áratugnum og menn fóru að treysta sér í lengri ferðalög á milli landshluta til þess eins að renna fyrir fisk voru erlendir veiðimenn fljótir að átta sig á þeim veiðiperlum sem Þistilfjörðurinn hafði að geyma og varð hann strax vinsæll áfangastaður meðal erlendra veiðimanna.

Hér eru veiðileyfin í Deildarár.