Eins og margir veiðimenn vita þá var veiðiréttur í Flekkudalsá á Fellsströnd boðin út í sumar. Tilboð voru opnuð í byrjun júlí og skv. fréttum þá barst hæsta tilboðið frá félagi í eigu Einars Lúðvíkssonar. Það ber samt ekki öllum fregnum saman um að tilboð Einars hafi verið það hæsta. Veiðifélagið er ekki enn búið að semja við nýjan leigtaka og mun á næstu dögum ræða við þá sem skiluðu inn tilboðum í Flekkuna. Tilboðin voru ekki öll með sama hætti en meðal þess sem var ólíkt á milli tilboða, var notkun á veiðihúsi og sú aðstaða sem veiðimönnum yrði boðið uppá, næstu sumur.
Það verður því ekki fyrr en á næstu vikum sem kemur í ljós hver verður næsti leigutaki Flekkudalsár.