Enn og aftur berast fréttir af flottri veiði í Hlíðarvatni. Í sumar hafa margar mjög vænar bleikjur komið á land í vatninu og hér er það aftur hún María Petrína Ingólfsdóttir sem er á ferðinni. María var við vatnið í gær og fyrradag en í gærkveldi veiddi hún 3,9 kg. bleikju í Botnavíkinni. Að auki setti hún í nokkrar fleiri vænar. Við höfum að auki heyrt af nokkrum öðrum sem hafa verið við vatnið undanfarna daga og veitt vel, bæði af smærri og stærri bleikjum.
Það er mikilvægt fyrir þá sem eru að fara í vatnið í fyrsta sinn að leita ráða hjá þeim sem kunnugir eru til að nýta túrinn sem allra best. Við minnum svo á tilboðið í Hlíðarvatn sem rennur út 28.júlí.