Rignt hefur mikið víða á landinu síðustu daga. Afleiðingar þess sáust vel í Blöndu í morgun, þennan fyrsta dag laxveiðivertíðarinnar. Mjög mikið var í ánni og liturinn ansi ófrýnilegur eins og sjá má á þessari mynd hér til hliðar. Fyrstu laxarnir sáust í Blöndu fyrir nokkrum dögum en ekki er líklegt að þeir sjái agn veiðimannsins við þessar aðstæður, þó ekkert sé hægt að útiloka.
Myndina fengum við lánaða hjá Stefáni Sigurðssyni hjá Lax-á.