Veiðikortið 2014 er að koma út. Kortið gefur handhafa þess rétt til að veiða í 36 vötnum, víðsvegar um landið. Fyrir árið 2014 koma 2 ný vötn inní kortið en það eru Gíslholtsvatn í Holtum og Vestmannsvatn í Suður-Þingeyjarsýslu. Verð Veiðikortsins er óbreytt á milli ára en það kostar kr. 6.900. Þeir sem skráðir eru á póstlista veiða.is fá kortið hinsvegar á kr. 5.990 – eina sem þið þurfið að gera er að senda póst á [email protected].
Nú eru jólin að nálgast og þá er upplagt að nefna að Veiðikortið hefur glatt marga sem hafa fengið það í jólagjöf í gegnum árin. Góð gjöf fyrir alla fjölskylduna.