Jæja, nú er fyrsti í laxi. Veiðin í Norðurá hófst í dag og síðan fylgja nokkrar aðrar í kjölfarið nú næstu daga. Fjórir laxar komu á land í Norðurá á fyrsta klukkutímanum í morgun og misstu veiðimenn einnig nokkra. Er mál manna sem eru við Norðurá, að sjaldan hafi sést jafn mikið af fiski í opnun árinnar. Almennt er vel selt í laxveiðiár landsins en hér inni á veiða.is má þá finna nokkra lausa daga, bæði nú í júní en einnig síðar í sumar.