Gufuá er í vefsölunni hér inni á veiða.is og því reynum við að fylgjast vel með veiðinni þar. Axel Freyr Eiríksson kíkti í ána í þrjá tíma um morguninn þann 3. júlí og náði þá einum laxi og missti annan. Veiðimenn sem voru í gær náðu svo þremur löxum og misstu 4. Voru laxarnir sem þeir náðu allir grálúsugir. Sáu þeir mikið líf á neðstu svæðum árinnar. Allir fiskarnir komu á land á veiðistöðum 0-5.
Á myndinn hér að ofan eru þeir Sigurður Hrafn og Búi Hrannar með laxana sem þeir náðu í gær í Gufuá.