Við vorum að fá inn á veiða.is laust holl í Flókadalsá í Borgarfirði. Eins og margir vita þá er afar sjaldgæft að holl í þessari frábæru á sé á lausu. Um er að ræða Verslunarmannahelgina, 2-4. ágúst. Flókan hefur verið ein besta á sumarsins en nú eru yfir 450 laxar komnir á land sem gerir um 5 laxa á dag á þær 3 stangir sem veitt er með. Í ánni má bæði veiða með flugu og maðki. Hér má finna nánari upplýsingar um Flókadalsá og hér er lausa hollið.

 

[email protected]