Síðustu sumur hefur verið reynt að sporna við minnkandi bleikjuveiði í Eyjafjarðará með því að skylda veiðimenn til að sleppa þeim bleikjum sem þeir veiða. Fyrst átti sú sleppiskyld við á efri svæðum árinnar en í sumar var skylda að sleppa öllum veiddum bleikjum á öllum svæðum árinnar. Þó svo enn sé erfitt að fullyrða með öllu hverju sleppingarnar hafa skilað, þá má sjá á eftirfarandi sögu að margar þeirra bleikja sem sleppt er, skila sér aftur í ána.
„Undirritaður veiddi bleikjuna á myndinni að ofan, þann 2. ágúst 2011 og reyndist hún vera merkt. Hún var þá 65cm. og var sleppt eftir snarpa viðureign og myndatöku. Þann 1.ágúst sl. veiddi sá sem þetta skrifar svo stærðarinnar bleikju á nánast sama blettinum og hina fyrri eða á Jökulbreiðunni á svæði 5 í Eyjafjarðará. Sú reyndist líka merkt og var hvorki meira né minna en 71cm. Við nánari eftirgrennslan reyndist þarna um sama fiskinn að ræða og veiðimaðurinn hafði glímt við sumarið 2011, haft sigur og sleppt aftur í ánna, nánast þremur árum fyrr upp á dag. Það má leiða að því líkum að þessi fiskur sé um það bil 9 pund og gott til þess að vita að hún syndir enn um hylji Eyjafjarðarár og muni auka kyn sitt enn eina ferðina.
Þetta er ótvíræð og óvéfengjanleg sönnun þess að veiða og sleppa aðferðin í bleikjuveiði, skilar árangri.“
Með veiðikveðjum,
Jón Gunnar Benjamínsson
Nú er um að gera að skella sér í Eyjafjarðará – það eru lausir dagar á flestum svæðum framundan og leyfin eru ekki dýr.
info@veida