Við sögðum í gær frá frétt Sunnlenska þess efnis að Samningur Skeiða- og Gnúpverjahrepps við Veiðifélagið Hreggnasa ehf um veiði í Fossá og Rauðá, væri fallin úr gildi vegna vanefnda. Hreggnasi sendi sunnlenska tilkynningu í dag þar sem m.a. segir að félagið sé eki í vanskilum og fullnaðargreiðsla vegna veiðiréttarins hafi þegar verið greidd. Jafnframt segir Hreggnasi ætla að athuga þá leið að leita réttar síns vegna samningsmála við umræddan leigutaka.
Að auki segir m.a. í tilkynningunni: „Fulltrúa sveitarstjórnar er fullkunnugt um ágreining leigutaka og leigusala. Ein ástæða hans er meint vanefnd leigusala á 13 gr. leigusamningsins er snýr að veiðivörslu á svæðinu. Leigusali hefur ekki tekið þátt í veiðivörslu líkt og kveðið er á um í samningi og hefur kostnaður fallið óskiptur á leigutaka.
Það skal ítrekað að Hreggnasi ehf stendur að fullu í skilum við umræddan leigusala líkt og við alla aðra viðsemjendur félagsins.“