Við höfum vart undan við að segja góðar veiðifréttir úr Hlíðarvatni. Eftir kalt vor virðist lífríkið við vatnið loksins komið í gang. Við fengum smá skýrslu frá Þresti Garðarsyni sem var við vatnið í gær. Þeir félagar gerðu mjög góða veiði þrátt fyrir vestan átt og rigningu mest allan tímann. Skýrslu Þrastar má sjá hér að neðan en hér til hliðar er Katrín Ósk, dóttir Þrastar með fína bleikju sem hún náði sjálf í Hlíðarvatni í gær.
Frá Þresti Garðarsyni 16. maí 2015
Var að koma úr Hlíðarvatni ásamt félaga mínum. Veðrið var ekki upp á sitt besta, vestanátt og rigning mest allan tímann, hætti þó að rigna ca. kl. 16. Við náðum 37 stk. Uppistaðan var 1 – 2 punda bleikjur. Félagi minn missti að því er virtist MJÖG stóra bleikju, var kominn með hana uppí flæðarmálið en hún var það stór að hún komst ekki í háfinn með góðu móti og varð til þess að hún slapp frá honum, Allar bleikjurnar veiddust við Mosatanga fyrir utan eina sem kom á í Fóellutjörn. Þær veiddust flestar á Píkokk Toppfluguna. Myndataka gleymdist fyrir utan þessa meðfylgjandi en hún er af Katrínu Ósk, 10 ára dóttur minni sem fékk þessa fínu bleikju sem hún heldur á.
Uppfært kl. 21:33 þann 17. maí
Veiðimenn Árbliks sem voru við veiðar í dag, 17. maí, náðu hátt í 30 bleikjum. Margar þeirra komu á land við „Gömlu Vör“ og voru ýmsar flugur að gefa, s.s. Krókurinn, Peter Ross og Engjaflugan.