Veiðin í Hlíðarvatni við Selvog hefur verið fin í sumar. Alveg frá upphafi vertíðar, þann 1. maí, hafa veiðimenn verið að gera fína veiði við vatnið. Ekki öllum stundum, að sjálfsögðu, heldur mjög oft. Vinsælasti tíminn við vatnið er oft fyrripart sumars þó svo að veiðin sé ekki síðri, og jafnvel betri, þegar líður á sumarið. Gústaf Gústafsson var við vatnið í gær og átti frábærar stundir. Fremur hlýtt var í veðri og nokkur stillt. Eins og stundum er, þá þarf að leita af bleikjunni í vatninu og reyna að finna út hvaða flugur hún vill. Gústaf leysti þær gátur í gærkveldi að minnsta kosti.
Í vestanverðri Botnavíkinni, víkinni sem hús veiðifélags Árbliks stendur við, átti Gústaf frábærar stundir. Hann setti í fjölmargar bleikjur, allt frá punds bleikjum uppí 4-6 punda „hlussur“. Flugurnar sem bleikjurnar vildu voru fyrst og fremst Peacock og lítil svört fluga sem heitir Dagbjört. Gústaf var með 4 punda grannan taum, dropper og tökuvara. Hér að neðan má sjá nokkrar myndir frá þessu kvöldi. Gústaf var svo almennilegur að sýna okkur á korti hvar bleikjurnar voru sem hann tók.
{gallery}gustaf{/gallery}