Á Facebook síðu Veiðiportsins póstar Tómas Skúlason eigandi búðarinnar smá frétt og myndum af veiðitúr í Þingvallavatnið í gær: „20 punda múrinn rofinn 2014 !
Við Siggi gym gerðum góðan túr á Þingvelli. Blanka logn þó það hafi gengið á með skúrum . Var að prófa alveg nýja aðferð. Sökklína með extra súper dúber sökkenda 14″ sökkhraði á sekundu. Tók black ghost sun burst keilu streemer no 2 ég tússaði endana á kanínu hárunum. Árangurinn 14 fiskar á 4 tímum þar af einn 20 punda og einn 18 punda rest var 5 – 16 punda (vorum á bát og fórum víða). Sjá myndir að neðan.

Mögnuð veiði og magnaðir fiskar.

{gallery}veidiportid{/gallery}

[email protected]