Nú er formlega frábæru veiðitímabili lokið hér á landi. Auðvitað stóð laxveiðin að nokkru leyti uppúr, enda voru veiðitölur í nokkrum ám hreinlega ævintýralegar. Við viljum þakka ykkur öllum kærlega fyrir samstarfið í sumar, en í sumar buðum við uppá, í gegnum veiða.is, fleiri veiðileyfi en nokkurntíman áður hérna á vefnum. Fjöldi vatnasvæða var nálægt 30 og stangardagar voru mörg þúsund. Við erum nú þegar farin að huga að næsta tímabili, eins og margir veiðimenn og fljótlega skráum við inná vefinn fyrstu lausu leyfin fyrir næsta tímabil. Það er nú samt þannig að þið veiðimenn getið nú þegar farið að hafa samband og bókað fyrir næsta sumar. Sendið okkur póst á info at veida.is.

 

kveðja, Kristinn hjá veiða.is