Nú hefur fimmta fréttabréf veiða.is verið sent í pósthólf áskrifenda. Í þessu fréttabréfi tökum við á móti fyrsta gestapenna bréfsins. Er þar á ferð maðurinn á bak við veiðibloggsíðuna, Flugur og Skröksögur, Kristján Friðriksson. Kristján er fróður um veiði og kemur efninu frá sér á skemmtilegan máta. Ég hvet alla til að fylgjast með Flugur og Skröksögur.

Kíktu í pósthólfið þitt. Ef þú sérð ekkert fréttabréf, þá ertu ekki skráður. Skráðu þig, það kostar ekkert að vera með.