Laxveiðin er á fullu stími eins og allir vita og góður gangur í flestum ám. Við fengum í vikunni fréttir úr Gufuá en lax kom á land bæði 22. og 23. júní og veiðimenn sem voru þar 23. júní sáu fiska uppí veiðistað nr. 9 og all marga á svæðinu þar fyrir neðan. Einnig fengum við fréttir frá mönnum sem voru að undirbúa veiðisvæðið við Hvolsá og Staðarhólsá, en veiðin þar hefst 1.júlí. Þeir sáu laxa stökkva í lóninu neðst í ánni, bæði smá lax og vænan 2ja ára lax. Hér má sjá hvað er laust í Gufuá og Hvolsá nú í júlí.