Fyrsti laxinn sem veiðist í Ölfusá á þessu sumri kom á land um kl. 10:30 í morgun. Um var að ræða 6 punda fallega hrygnu. Veiðistaðurinn var „stóllinn“. Veiðimaðurinn heitir Sigurður Þ Sigurðarson (Siggi Þór). Töluvert líf var á svæðinu í morgun, fiskar að sýna sig og festa sig laust á agn veiðimanna. Á sama tíma heyrðist af fyrsta laxinum sem kemur á land í Soginu í sumar, sjá mynd hér til hliðar. Veiðimaðurinn tilheyrir félagsskap sem kennir sig við Sogið. Hann heitir Stefán „Togari“ Kristjánsson. Laxinn var 5 punda grálúsugur hængur og tók hann hálf tommu Sun Ray.

Í dag er stærsti straumur sumarsins, Jónsmessustraumurinn. Má segja að flestir veiðimenn bíði spenntir eftir að sjá hverju hann skili, hvort fyrstu alvöru smálaxagöngur sumarsins komi uppí árnar.

Hér má sjá heimasíðu Sogsmanna.

[email protected]