Veiðin í Ölfusá hefur verið ágæt það sem af er. Stærsti dagur tímabilsins var í gær en þá komu 9 laxar á land. Þeir voru á bilinu 1,6 – 5,3 kg. Flestir laxarnir komu á maðk en þó kom amk. einn á flugu. Í heildina eru komnir 29 laxar á land. Stærsti laxinn var 5,5 kg. Í morgun þegar við fengum fréttir af svæðinu voru 2 komnir á land. Fínar göngur virðast vera á leið um svæðið því veiðimenn hafa orðið var við töluvert af laxi, utan þeirra sem náðst hafa á land.

 

[email protected]