Veiðin í Borgarfirðinum hefur verið mjög góð í allt sumar og Grímsá er þar ekki undanskilin. Ríflega 1.400 laxar eru komnir úr Grímsá í sumar sem er yfir meðaltali árinnar. Veitt er að hámarki með 8 stöngum hverju sinni og leyfilegt agn er fluga. Tveggja laxa kvóti er á dag pr. stöng og öllum laxi, 69 cm og yfir, skal sleppt. Tæpar 2 vikur eru eftir af veiðitímanum í Grímsá og flestir hyljir fullir af fiski. Veiðimenn sem voru í ánni í vikunni veiddu vel þrátt fyrir mikið vatn og strekkings vind.
Þeir fóru á öll 4 svæðin í ánni og sögðust hafa lent í ævintýrum á hverri vakt. Þeir settu í marga fiska, náðu sumum og misstu aðra, eins og gengur. Flestir þeirra voru að koma í Grímsá í fyrsta skipti en munu klárlega koma aftur eftir þessa ferð.
Fyrir þá sem vilja kíkja í Grímsá fyrir lok vertíðar þá er hægt að ná sér í staka daga um og eftir 23. sept. Þá er veitt frá morgni til kvölds, með smá matarhlé yfir hádaginn. Veiðimenn sjá um sig sjálfir. Öllum laxi skal sleppt á því tímabili.
Hér til hliðar er einn af þeim löxum sem komu á land hjá þeim félögum í vikunni, um 75 sm hængur sem kom á land í Töðunefi. Að sjálfsögðu fékk hann að fara aftur í hylinn að lokinni myndatöku.