Laxveiðivertíðin hefur aldeilis farið á flug og víða veiðist alveg gríðarlega vel. Ein þessara áa er Gufuá en þar hafa sumir veiðimenn gert flotta veiði. Sem dæmi um það, þá náðu þeir sem voru við veiðar í gær, 9 löxum og misstu annað eins. Flestir þessara laxa voru mjög neðarlega í ánni, á veiðistað/svæði, nr. 0. Gufuá er fremur vatnslítil þessa dagana en það hefur ekki stoppað laxinn frá því að ganga uppí ána. Hér má sjá hvað er laust á næstu dögum í Gufuá.
info at veida.is