Nú eru leyfi í Gufuá í Borgarfirði komin inná veiða.is. Gufuá hefur verið í sölu hér inni á veiða.is síðustu 2 veiðitímabil. Veiðin í Gufuá í fyrra var mjög góð. Yfir 220 laxar voru skráðir á stangirnar 2 sem leyft er að veiða á, hverju sinni og nokkrir tugir birtinga. Ljóst er að veiðin hefur verið meiri, því komið hefur fyrir að veiðimenn hafi gleymt að skrá aflann þar sem veiðibókin hefur verið staðsett á einum af bæjunum við ána og margir keyrt í burtu, án þess að koma þar við.
Verð veiðileyfa í sumar er frá kr. 10-25. þús pr. stangardag. Sjá nánar hér.
{gallery}gufua2{/gallery}