Bókanir í Hallá á Skagaströnd fyrir sumarið 2026 eru hafnar. Verð veiðileyfa er óbreytt á milli ára.

Hallá er falleg lítil dragá sem rennur til sjávar rétt sunnan við Skagaströnd í um 10 mínútna fjarlægð frá þjóðvegi 1 við Blönduós. Veiðisvæðið er um 12 km að lengd og er veitt á tvær stangir. Leyfilegt er að veiða á flugu í Hallá. Ágætt veiðihús er á góðum stað við ána.