Ytri Rangá er lang atkvæðamesta laxveiðiá landsins þetta veiðitímabilið, ef litið er til fjölda landaðra laxa. Nú 3ja september þá lauk „fly only“ tímabilinu í ánni og frá og með hádegi þann dag er leyfilegt að nota einnig spún og maðk. Síðan þessi breyting var gerð hefur hátt í 600 löxum verið landað og á fyrstu vaktinni e. þessa breytingu komu 186 laxar á land. Ytri er svo gott sem uppseld fram yfir miðjan október en þó er ein laus stöng á tímabilinu 11-17. september. Hægt er að bóka 1 eða fleiri daga frá hádegi til hádegis. Sjá hér.