Veiðin er hafin í Heiðarvatni, í einu albesta veiðivatni landsins. Heiðarvatn í Heiðardal, er rétt um 10 mínútur frá Vík í Mýrdal. Úr Heiðarvatni rennur lax og sjóbirtingsáin Vatnsá. Opnunarhollið í Heiðarvatni gerði mjög gott mót, sbr hér að neðan:

„Opnunar hollið í Heiðarvatni gerði frábæra veiði. Náðu yfir 80 fiskum á land og stærsti var 81 cm birtingur. Þá kom gríðarlega falleg bleikja á land og nokkrir vel haldnir urriðar.

Þetta var frekar blandaður afli og fiskur almennt vænn. Það sem kemur kannski skemmtilega á óvart var að fiskurinn tók meira rétt undir yfirborði og á hröðu strippi.

Það má gera ráð fyrir að veislan sé því byrjuð og nái hámarki um mánaðamótin næstu. Það fer þó allt eftir veðri að sjálfsögðu

Seldar eru mjög fáar stangir dag hvern í Heiðarvatn og að öllu jöfnu eru stangirnar seldar saman, einum hópi. Mjög lítið er laust í vor.