Veiðin í Hlíðarvatni hefst þann 1. maí 2016. Hér inni á veiða.is verður að sjálfsögðu hægt að bóka leyfi í vatnið í sumar. Kl. 23:59 þann 30. janúar hefst almenn sala leyfa í Hlíðarvatn en dagana 26-30. janúar fá félagar í Stangaveiðifélagi Árbliks tækifæri til að skrá sig fyrir dögum. Þangað til almenn sala hefst, gefst almennum veiðimönnum tækifæri á að skrá sig á biðlista fyrir veiðidögum í Hlíðarvatni. Ef sá eða þeir dagar eru lausir að skráningartímabili Árbliksmanna loknu, þá er fyrst dögum úthlutað af biðlistanum. Hér má sjá lausa daga og verð í Hlíðarvatn í sumar.