Hlíðarvatn í Selvogi er á leið í sölu hingað inná veiða.is, innan fárra daga. Nú stendur yfir forúthlutun til félaga í Árbliki, veiðifélags sem er með ráðstöfunarrétt hluta þeirra stanga sem leyfilegar eru í Hlíðarvatni. Þegar forúthlutunartímabilinu lýkur, í næstu viku, fara lausir dagar í almenna sölu. Þó má geta, að almennir veiðimenn geta nú skráð sig á biðlista eftir tilteknum dögum í Hlíðarvatni. Ef þeir dagar verða ennþá lausir að lokinni forúthlutun, þá fá þeir þá daga. Sendið póst á info at veida.is
Hér má lesa nánar um Hlíðarvatn í Selvogi.