Sumarið er tíminn, er það ekki annars? Inni á veiða.is má nú finna Jónsmessu holl í Fremri Laxá, 24-26. júní. Frábær tími í Á sem hefur verið þaulsetin í mörg ár. Fremri Laxá er flott á til að fara með alla fjölskylduna í. Þarna fá allir fisk og upplagt er fyrir krakkana að æfa sig með flugustöngina. Veitt er með 3 stöngum á þessum tíma. Heimilt er að veiða hvenær sem er sólarhringsins, þó aldrei meira en 12 klst innan hans. Þess má geta að hollið sem var við veiðar um helgina í Fremri, var með 179 urriða.

Fyrir áhugasama er um að gera að senda póst á [email protected] eða hringja í síma 897 3443.

[email protected]