Veiðisvæði Hólsár er um 20 km langt og nær frá ármótum Þverár og Eystri Rangár, niður að ármótum við Ytri Rangá og þaðan útí sjó. Veiðin í Hólsá í sumar hefur verið mjög góð. Vel yfir 700 laxar hafa verið skráðir í veiðibókina og að auki hefur fjöldi sjóbirtinga komið á land, enda er Hólsá mjög góð Sjóbirtingsá. Leyfilegt agn í Hólsá er fluga, maðkur og spúnn. Veitt er í Hólsá inní október og framundan eru nokkrir lausir dagar. Hægt er að enda póst á info at veida.is til að fá upplýsingar um þá. Þessi skötuhjú náðu þessum 2 löxum í gær í Hólsá, í stuttu stoppi við ána á leið þeirra um landið.

info at veida.is