Veiðin á Hrauni í Ölfusi hefur verið góð síðustu daga. Við höfum verið að safna saman veiðiskýrslum frá veiðimönnum sem hafa verið á svæðinu síðustu daga og margir þeirra hafa góða sögu að segja.
Einn veiðimaður landaði 6 fiskum, nokkrir 1-1,5 pund en sá stærsti um 4 pund. Annar veiðimaður náði 3 fiskum á bilinu 2,5-5 pund. Enn annar veiðimaður landaði 26 fiskum, bæði á flugu og spún. Flestir fiskarnir voru smáir, rétt um 1-1,5 pund en vænir inná milli.
Stangardagurinn er á kr 2.550 og má veiða allan daginn. Allt agn er leyfilegt.