Nú höfum við skráð laus holl í Hvolsá og Staðarhólsá á vefinn hjá okkur. Leyfilegt er að veiða á flugu og maðk í Hvolsá og Staðarhólsá og veitt er á 4 stangir. Aðgangur að mjög góðu veiðihúsi fylgir leyfum í Hvolsá og Staðarhólsá. Stangirnar 4 eru seldar saman í einum pakka, yfirleitt í 2 daga í senn.

Meðal lausra holla er dagar frá 1-15. júlí. Hollin 21-23 og 23-25. júlí og síðan eru nokkrir dagar lausir í síðari hluta ágúst. September er síðan nokkuð opinn.

Kíkið á dagana og verð hérna.