Veiðisvæði Strengja fyrir austan, Breiðdalsá og Jökla, hafa farið fremur rólega af stað, þó nú virðist meiri kraftur vera að færast í veiðina. Nýjir fiskar eru að veiðast og göngur að stækka. Þessi fiskur veiddist í Jöklu á veiðistað sem heitir Hólaflúð sem er langt upp í Jökuldal. Hér eru nánari upplýsingar um Jöklu og Breiðdalsá.