Laugardalsá í Ísafjarðardjúpi er komin í útboð. Laugardalsá er mjög góð 2-3ja stanga Laxveiðiá en leyfilegt agn í ánni hefur verið maðkur og fluga. Meðalveiði í Laugardalsá undanfarin ár eru rúmir 420 laxar. Í sumar skilaði áin 404 löxum. Lax-á hefur verið með Laugardalsá á leigu mörg undanfarin ár en líklega leiddu erfiðar aðstæður á laxveiðimarkaðnum til þess að uppúr slitnaði um miðjan þennan mánuð.

Laugardalsá er ekki síðasta áin sem fer í útboð í haust. Þeir sem taka við Laugardalsá og öðrum ám sem eiga eftir að fara í útboð, eiga verðugt verkefni fyrir höndum að koma veiðileyfunum á framfæri. Flestir veiðileyfasalar eru byrjaðir að bóka fyrir þó nokkru síðan.

Frestur til að skila inn tilboði í Laugardalsá rennur út 30. október og verða tilboðin opnuð sama dag. Útboðsgögn eru hjá umsjónarmanni útboðsins Haraldi Júlíussyni, Engjavegi 19, 400 Ísafirði. Sími 618-6465, tölvupóstfang [email protected].

[email protected]