Laxveiðivertíðin gengur aldeilis vel, flottar veiðitölur úr mjög mörgum ám. Það er enn heilmikið eftir af vertíðinni og það eru laus laxveiðileyfi á næstu dögum í nokkrum laxveiðiám. Fyrst má nefna Ytri Rangá en þar er laust 7-8., 10-11 og 12-14. ágúst. Næst má nefna að það er laust í Hólsá, stakar stangir fram til hádegis 10. ágúst en þar má veiða á flugu, maðk og spún. Einnig er laust í Hörðudalsá 9-12. ágúst ogSvo er laust í Laugardalsá 12-15. ágúst. Sendið póst á info at veida.is fyrir nánari upplýsingar.

 

info at veida.is