Flókadalsá í Fljótum (efri) er fyrst og fremst mjög góð sjóbleikjuá þó einn og einn lax veiðist í ánni á hverju sumri. Áin er mjög skemmtileg veiðiá en hún liggur innst í Flókadalnum. Svæðið nær neðan frá Flókadalsvatni og fram að afréttargirðingu. Yfirleitt er áin fullbókuð þegar kemur inní sumarið en nú ber svo við að nokkrir dagar er lausir í Júlí og ágúst, m.a. 11-15. júlí sem er að jafnaði einn besti tíminn í ánni. Fyrir áhugasama má senda póst á [email protected]. Hér má lesa nánar um Flókadalsá.